Orlofsheimili
- Akrar

Orlofsheimilasjóður á og rekur orlofsheimili FÍH að Ökrum í landi Stóra Fjalls í Borgarfirði. Bústaðurinn var keyptur árið 1988 og hefur verið í útleigu frá 1. júlí það ár. Hann hefur notið mikilla vinsælda og hefur fjöldi félagsmanna dvalið þar.
Bústaðurinn sem er á kjarri vöxnu landi er mjög vel búinn öllum nútímaþægindum, meðal annars gufubaði og þar er gott útsýni yfir allan Borgarfjörð.

Útleiga og úthlutun fer samkvæmt orlofsreglum og þarf að skila inn umsókn til skrifstofu félagsins. Einungis er leigt út í viku í senn frá og með 1. júní til 1. september. Á öðrum tíma er hægt að dveljast þarna í skemmri tíma. Leiga er ákveðin af aðalfundi.

Með lágmarksgreiðslum í orlofsheimilasjóð sem ákveðnar eru af aðalfundi ár hvert, öðlast félagar rétt til dvalar með framlagi sínu. Atvinnurekandi greiðir fyrir launþega 0,25% af öllum launum í sjóðinn. Þeim félagsmönnum sem ekki vinna að staðaldri hjá viðsemjendum ber að greiða 3000 kr. á ári í sjóðinn.

































- Úthlíð í Biskupstungum


































- Bjarnabúð

Nú býðst félagsmönnum fullbúið 150 fermetra einbýlishús með bílskúr á Súðavík. Stutt er í veiði, skemmtilegar skoðunarferðir og í bílskúrnum bíður gúmmíbátur með utanborðsmótor. Hafið samband tímanlega við skrifstofu félagsins til að fá frekari upplýsingar í síma 588-8255. Bjarnabúð er eign sjúkrasjóðs FÍH og ganga skuldlausir félagar við sjóðinn fyrir við afgreiðslu umsókna.