Velkomin á
heimasíðu Tónlistarskóla FÍH.
Tónlistarskóli F.Í.H. hefur
mikla sérstöðu meðal tónlistarskóla
landsins. Hann býður upp á hefðbundið
tónlistarnám auk kennslu í rythmiskri tónlist
(djass, popp, rokk,) Skólinn getur boðið allt að
200 nemendum skólavist og er vel búinn tækjum
og hljóðfærum.
Tónlistarskóli F.Í.H. er ólíkur
öllum öðrum tónlistarskólum á
Íslandi. Sérstaða skólans er meðal
annars fólgin í því að hann er rekinn
af stéttarfélagi tónlistarmanna, en okkur vitanlega
á þetta fyrirkomulag sér ekki hliðstæðu
annarsstaðar í heiminum. Margir kynnu að halda að
stéttarfélagi væri meira í mun að
halda samkeppni í lágmarki en að fjölga á
þröngum markaði. Hér birtast hinsvegar háleitar
hugsjónir stofnenda Tónlistarskóla F.Í.H.
sem sáu að fjölgun vel menntaðra tónlistarmanna
gæti aldrei leitt nema gott af sér, einkum fyrir tónlistarlíf
þjóðarinnar. Tengsl skólans við stéttarfélag
tónlistarmanna eru sterk.
Tónlistarskóli F.Í.H. er ekki
einungis rekinn af félaginu, heldur eru flestir kennarar
skólans virkir félagsmenn og önnum kafnir hljóðfæraleikarar,
raunar margir af fremstu tónlistarmönnum landsins. Þessar
staðreyndir móta skólastarfið og skólaandann
drjúgt.
Tónlistarskóli F.Í.H. var fyrstur
íslenskra tónlistarskóla til að hefja kennslu
í jazz-tónlist árið 1980. Þessu frumkvæði
hefur skólinn haldið með því að
opna dyrnar fyrir rokktónlist á undan öðrum,
byggja upp fullkomið hljóðver, hljóðritasafn
og fleira.
Eitt af helstu stefnumiðum skólans er
að sinna sem flestum gerðum tónlistar, en sérstök
áhersla er lögð á jazz, rokk og sígilda
tónlist. Leitast er við að gera þessum tegundum
tónlistar jafn hátt undir höfði, enda rímar
sú hugsun við starfsemi Félags íslenskra
hljómlistarmanna sem er deildaskipt á sama máta.
Skólinn leggur áherslu á hagnýta
kennslu sem nýtist nemendum í sjálfstæðri
tónlistariðkun. Auk kennslu í bóklegum
greinum og hljóðfærakennslu, einkennist skólastarfið
af mikilli samspils iðkun og líflegu tónleikahaldi.
Hvergi er þó slegið af faglegum kröfum, enda
er nám í Tónlistarskóla F.Í.H.
matshæft í flesta framhaldsskóla og þykir
sambærilegt við það sem boðið er upp
á í þeim tónlistarskólum sem fremstir
þykja í hefðbundnu tónlistarnámi.
Námsbrautir og deildir eru nokkrar og bjóða
fáir tónlistarskólar upp á jafn mikið
og fjölbreytt úrval bóklegra greina og Tónlistarskóli
F.Í.H. gerir. En þó að hljóðfærakennarar
séu hæfir og námsframboð gott, þá
eru nemendurnir sjálfir alltaf mikilvægastir. Þeir
og það umhverfi sem þeir skapa hverjum öðrum
er nefnilega eitt sterkasta kennslutækið.
Reynslan hefur sýnt að í Tónlistarskóla
F.Í.H. eru tónlistarmenn framtíðarinnar
við nám, ekki síst á sviði jazz- og
rokk-tónlistar. Reynslan hefur einnig sýnt að
nemendur sem stunda námið vel og útskrifast frá
Tónlistarskóla F.Í.H. eiga greiðan aðgang
að tónlistarskólum erlendis.
Námið í F.Í.H. skólanum
hefur reynst mörgum farsælt veganesti sem vel hefur dugað
í stöðuprófum við erlenda háskóla.
Það er einnig gleðiefni að skólinn okkar
vekur athygli utan Íslands, en erlendir skiptinemar hafa
talsvert sótt í skólann, en Tónlistarskóli
FÍH er í nánu samstarfi við erlenda tónlistarháskóla.
Þegar litið er yfir farinn veg hlýtur öllum
að vera ljóst að skólinn hefur á starfstíma
sínum haft mikil áhrif í íslensku tónlistarlífi,
sérstaklega hvað varðar jazz- og rokk-tónlist.
Þó að áherslan hafi lengstum
verið mun meiri á jazz og áhrifin hafi ljóslega
verið mikil þar, eru flestir sammála um að
starfsemi skólans hafi ekki haft minni áhrif á
rokk- og popptónlist á Íslandi. Getustig íslenskra
hljóðfæraleikara á báðum sviðum
fer ört hækkandi og þar á Tónlistarskóli
F.Í.H. drjúgan hlut að máli. Þá
má heldur ekki vanmeta þátt skólans í
almennri viðhorfsbreytingu gagnvart annarri tónlist en
klassískri og námi á þeim sviðum.
það er eðli góðra menntastofnana að
vera í sífelldri endurskoðun.
Þannig mun Tónlistarskóli F.Í.H.
halda áfram að fylgjast með nýjungum, halda
áfram að breyta námsframboði og bæta
aðstöðu, allt í takt við kröfur tímans.
Alltaf skal þó hlúð að nauðsynlegum
undirstöðuþáttum sem lítið breytast
í tímans rás. Stjórnendur skólans
hafa lagt sig fram við að gera allar aðstæður
eins aðlaðandi og hægt er.
Hljóðfæra- og tækjakostur
eykst með ári hverju, sem og fjöldi umsækjenda.
Námsaðstaða er góð, námið vel
skipulagt, kennarar hæfir og andi meðal nemenda góður.
Möguleikarnir eru því ótakmarkaðir,
en árangurinn er auðvitað undir hverjum og einum
kominn.
Við hjá Tónlistarskóla F.Í.H.
óskum ykkur alls hins besta í tónlistarnáminu.
|