|
|
|
|
|
|
Á 7. fundi borgarráðs þann 14. mars sl. var lagt fram bréf borgarritara f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 6.s.m. um afmörkun lóðar tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels. Jafnframt var lagt fram minnisblað borgarverkfræðings dags. 13. mars og samþykkti borgarráð tillögur borgarverkfræðings. Lóðaafmörkun er sýnd á meðfylgjandi uppdrætti og er hún í tveim hlutum 7.200 m2 milli Geirsgötu og Tryggvagötu og u.þ.b. 20.000 m2 norðan Geirsgötu. Með því að byggja yfir Geirsgötu má tengja lóðirnar saman þannig að byggingarreitur stækkar sem nemur götustæðinu og verður samfelldur Á þessari lóð skal komið fyrir tónlistar- og ráðstefnuhúsi ásamt hóteli samkvæmt forsögn ásamt 600 bílastæðum vegna TRH og 320 bílastæðum vegna miðborgarinnar, skiptistöð fyrir
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
SVR og viðbótarhúsnæði allt að 15.000 m2 eins og nánar kemur fram hér á eftir. Reiknað er með að tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði 14.000 m2 og hótelið 20.000 m2. Skiptistöð SVR samanstendur af stæði fyrir vagna í biðstöðu, biðsal fyrir farþega og þjónusturými svo og vagnstæði fyrir vagna sem eru að taka við farþegum. Gert er ráð fyrir því að undirbúningur og hönnun TRH taki enn 1,5-2 ár og bygging 2-3 ár þannig að heildartími uppbyggingar tekur 4-5 ár. Samtímis uppbyggingu TRH þarf að finna lausnir til þess að skapa sem bestar aðstæður fyrir starfsemi Reykjavíkurhafnar.
Úrdráttur úr skýrslu Borgarverkfræðings unninn af ,Sigurgeiri Sigmundssyni.
|
|
|
|
|
|
|