|
|
|
|
|
|
Skipun nefndar Nefnd um tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð var skipuð af menntamálaráðherra þann 23. mars 1999. Nefndin hefur það hlutverk að vinna að samkomulagi milli ríkis og Reykjavíkurborgar um fjármögnun, framkvæmdatilhögun og kostnaðarskiptingu vegna byggingar tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar í samvinnu þessara aðila. Auk þess er það hlutverk nefndarinnar að fá rekstraraðila og fjárfesti að hóteli, sem rísi í tengslum við tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðina. Eftirtaldir sitja í nefndinni: Fulltrúar ríkis: Ólafur B. Thors framkvæmdastjóri, tilnefndur af menntamálaráðherra og er hann formaður nefndarinnar. Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri, tilnefndur af samgönguráðherra. Þórhallur Arason skrifstofustjóri, tilnefndur af fjármálaráðherra.
|
|
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
annarsvegar Artec Consultants og hins vegar Christie Consulting. Artec Consultants hefur komið með tvær hugmyndir um gerð og uppbyggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar og hafa gert drög að áætlun um rekstur þeirra. Christie Consulting hefur gert drög að rekstraráætlun fyrir hótel, sem tengt yrði ráðstefnumiðstöðinni. Á grundvelli rekstrar og hagkvæmnisáætlana hafa verið gerðar áætlanir um fjármögnun verkefnisins. Leitað var til FBA um ráðgjöf á sviði fjárfestingarmála. Uppbygging hússins Gert er ráð fyrir þremur sölum í húsinu auk minni ráðstefnuherbergja. Tónleikasalur rúmar 1.500 áheyrendur, þar af 200 aftan við svið en þau sæti eru einnig notuð fyrir kór og tekur salurinn þá
|
|
|
|
|
|
|