Mál Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni

Kæru félagsmenn,

 

Eflaust hafa flest ykkar séð eða heyrt af úrslitum í máli Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni, í sem skemmstu máli þá staðfesti Landsréttur öll ákæruatriði og niðurstaðan var skýlaust Þóru í hag. Mikilvægi þessarar niðurstöðu er söngvurum afar mikilvæg, en ekki síður skiptir hún máli fyrir öll þau sem vinna á verksamningum í hvaða fagi sem er. Dómurinn staðfestir nefnilega að óheimilt sé að verksamningar séu gerðir um lægri greiðslur en gildandi kjarasamningar milli aðila kveða á um að kaupið skuli vera.  Líklegt er að í náinni framtíð muni losna um ráðningarsambönd með innleiðingu „Harkhagkerfisins“ og ég spái að dómur Landsréttar muni verða stéttarfélögum mikilvægt vopn í baráttunni við að tryggja sanngjörn kjör. Til hamingju Þóra!

 

Hér má sjá dóminn:

 

https://landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?Id=75420ca8-f513-41de-9b82-32c7dc230ca6&verdictid=a1129973-0494-4903-8b22-286a7bda6585

 

Bestu kveðjur,

 

Gunnar Hrafnsson – formaður FÍH