Verktakar FÍH: svona skilar þú iðgjöldum til BHM

Stutt útgáfa, aðeins skrefin. Sjá ítarlegri leiðbeiningar með dæmum og skýringum hér.

  1. Finndu reiknað endurgjald þitt hjá Skattinum, flokkur C fyrir tónlistarmenn. Oftast flokkur C6, 795.000 kr á mánuði fyrir einyrkja árið 2026.
  2. Farðu inn á rafrænt iðgjaldaform BHM.
  3. Skráðu kennitölu launagreiðanda og netfang efst, veldu Félag íslenskra hljómlistarmanna og réttan mánuð. Ert þú með eigið félag (t.d. ehf.) sem sér um reksturinn? Þá er þetta kennitala félagsins, því félagið telst launagreiðandinn, ekki þín eigin kennitala.
  4. Skráðu þína eigin kennitölu aftur sem launþega, jafnvel þótt þú hafir skráð kennitölu félagsins í skrefinu á undan og settu reiknaða endurgjaldið í bæði Dagvinnulaun og Heildarlaun, sömu upphæð í báða reiti.
  5. Farðu yfir hökin fyrir ofan sjóðina:
    1. Láttu standa Orlofssjóður og Sjúkrasjóður.
    2. Taktu hakið af Starfsmenntunarsjóður BHM, Starfsþróunarsetur og Endurmenntunarsjóður FÍH.
    3. Taktu hakið af Fagörorkutrygging, nema þú hafir sérstaklega sótt um hana hjá skrifstofu FÍH.
  6. Sendu formið. Kvittun berst á netfangið sem þú slóst inn.

Svona lítur útfyllt formið út

Dæmið hér fyrir neðan sýnir hvernig launþegataflan á forminu á að líta út fyrir verktaka, miðað við 795.000 kr reiknað endurgjald. Kennitalan er uppspuni.

Kt. Dag­vinnu­laun Heildar­laun Félags­gjöld Orlofs­sjóður Sjúkra­sjóður Starfs­menntunar­sjóður Starfs­þróunar­setur Endur­menntunar­sjóður FÍH Fag­örorku­trygging
alltaf með
láttu standa
láttu standa
taktu af
taktu af
taktu af
taktu af *
0101903049 795.000 795.000 9.540 1.988 7.950
Heildargreiðsla samkvæmt skilagrein 19.478 kr.

Reitirnir fyrir Starfsmenntunarsjóð, Starfsþróunarsetur, Endurmenntunarsjóð FÍH og Fagörorkutryggingu eru skildir eftir auðir, því hakið er tekið af þeim. * Fagörorkutrygging er þó undantekning, sjá aðvörunina hér fyrir neðan.

Fagörorkutrygging er föst upphæð, 8.093 kr á mánuði, óháð tekjum og á aðeins við þá sem hafa sótt um hana sérstaklega. Sé hakið ekki tekið af greiðir þú fyrir hana að ástæðulausu.

Viljir þú greiða í Starfsmenntunarsjóð BHM eða Starfsþróunarsetur getur þú haft samband við BHM til að fá upplýsingar um það.

Þessar leiðbeiningar koma ekki í stað ráðgjafar frá Skattinum eða skrifstofu FÍH. Hafir þú vafa um þitt tilvik, hafðu samband við skrifstofu FÍH á fih@fih.is eða í síma 588 8255.