Menningarsjóður FÍH – 2. úthlutun 2026
Við vekjum athygli ykkar á að annar úthlutunarfundur ársins úr Menningarsjóði FÍH er haldinn mánudaginn 15. júní nk. og að umsóknir þurfa að hafa borist fyrir miðnætti fimmtudaginn 11. júní til að umsóknin komi til greina við þá úthlutun.
Rafrænt umsóknareyðublað er að finna undir flipanum „Umsóknir“ —> „Menningarsjóður“.
Þar má einnig lesa úthlutunarreglur sjóðsins og við minnum á að umsóknir koma aðeins til greina ef upplýsingagjöfin er fullnægjandi.
Tilkynnt verður um niðurstöður styrkveitinga með rafrænum hætti.
Bestu kveðjur,
Úthlutunarnefnd Menningarsjóðs FÍH
