Orlofshús
Orlofshús FÍH
FÍH á tvö orlofshús sem félagsmenn geta sótt um að dvelja í: Kjarrhús í Úthlíð og Bjarnabúð í Súðavík. Fullgildir félagsmenn í skilum ganga fyrir við úthlutun.
Kjarrhús í Úthlíð
Kjarrhús, Guðjónsgötu 11, er opið til umsóknar allt árið. Félagið keypti húsið árið 2006. Það stendur á kjarri vöxnu landi og er búið öllum nútímaþægindum, með heitum potti, sérstöku gufuhúsi með palli og grilli. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með svefnplássi fyrir sex manns, auk barnarúms og barnastóls.
Bjarnabúð í Súðavík
Bjarnabúð, Túngötu 14, er leigð út frá 1. maí til 30. september, viku í senn. Húsið er 150 m² fullbúið einbýlishús með bílskúr. Í því eru fjögur svefnherbergi með svefnplássi fyrir átta manns, auk barnarúms og barnastóls. Í húsinu eru þvottavél, þurrkari og uppþvottavél, og á pallinum er gufutunna og grill. Hægt er að leigja sængurfatnað og handklæði hjá umsjónarmanni.
Stutt er í veiði og skemmtilegar skoðunarferðir. Fjölskyldugarður Vestfjarða, Raggagarður, er í um 400 metra fjarlægð frá húsinu og þar eru leiktæki við allra hæfi. Nánari upplýsingar eru á Fésbókarsíðu Raggagarðs.
Leigutímabil
Frá 1. júní til 1. september er Kjarrhús í Úthlíð eingöngu leigt út í viku í senn, frá föstudegi til föstudags. Utan þess tíma er hægt að leigja það í styttri tíma. Bjarnabúð er leigð út viku í senn frá 1. maí til 30. september.
Orlofsnefnd FÍH fer yfir umsóknir um dvöl um jól, áramót, páska og yfir sumarmánuðina.
Umsóknir
Opnað verður fyrir umsóknir í byrjun árs 2027. Sótt er um í gegnum umsóknarformið hér fyrir neðan.
Myndir úr Kjarrhúsi í Úthlíð
Myndir úr Bjarnabúð í Súðavík

















