Aðalfundarboð FÍH 2023

 

Aðalfundur FÍH 2023 verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl 2023  kl. 18:00 í sal FÍH, Rauðagerði 27. Einnig verður hægt að sækja aðalfundinn á ZOOM fjarfundasniði.

Fundarefni:

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Lagabreytingar
  • Kosning til stjórnar (kosið er um þrjá meðstjórnendur)
  • Önnur mál

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

 

Vert er að benda á eftirfarandi úr lögum félagsins:

Framboð til stjórnarsetu skulu berast skrifstofu félagsins a.m.k.
viku fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn er heimilt að tilnefna félagsmenn í stjórnir og ráð hafi
ekki borist framboð fyrir tilskilinn tíma.

Við vonumst til að sjá sem allra flesta félagsmenn á fundinum. Árangur félagsins er bara summan af samtakamætti okkar og við leitum eftir að þið takið þátt í að móta hvert við stefnum!

Bestu kveðjur

Stjórn FÍH