FÍH – Námskeið fyrir félagsmenn – umsóknargerð

Nú fer að líða að skilafresti í Tónlistarsjóð, Upptökusjóð og Listamannalaun  og við bjóðum nú félagsmönnum aftur uppá námskeið með Sveini Sverrissyni til að aðstoða á loka metrunum.

 

Umsóknarferlið getur virkað flókið og því nauðsynlegt að fá aðstoð við gerð umsókna til að stuðla að betri árangri. Sveinn Sverrisson var með vel heppnað námskeið fyrir FÍH síðasta haust. Gagnlegt námskeið hér á ferð og við hvetjum áhugasama að nýta sér þetta einstaka tækifæri.

 

Sveinn hefur að baki mikla reynslu í rekstri, mannauðstjórnun og verkefnastjórnun.

Hann hefur í 15 ár aðstoðað tónlistarmenn við styrkjaumsóknir og umsóknir til listamannalauna með góðum árangri.

Þá hefur hann á undanförnum fjórum árum tekið að sér umboðsmennsku fyrir tónlistarmenn og komið á sambandi við útgefendur, markaðsfyrirtæki og bókunarfyrirtæki undir merkjum Snorri Management.

 

 

Námskeiðið verður þriðjudaginn 7.september kl 20:00 í Rauðagerði 27

Frítt fyrir félagsmenn

Skráning er á thora@fih.is