FÍH – aðalfundarboð 2024

 

Aðalfundur FÍH 2024 verður haldinn þriðjudaginn 7. maí  kl. 18:00 í sal FÍH, Rauðagerði 27. Einnig verður hægt að sækja aðalfundinn á ZOOM fjarfundasniði.

Fundarefni:

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Lagabreytingar
  • Kosning til stjórnar (kosið er um formann, meðstjórnanda og einn í varastjórn)
  • Önnur mál

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

 

Vert er að benda á eftirfarandi úr lögum félagsins:

Framboð til stjórnarsetu skulu berast skrifstofu félagsins a.m.k.
viku fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn er heimilt að tilnefna félagsmenn í stjórnir og ráð hafi
ekki borist framboð fyrir tilskilinn tíma.

Við vonumst eftir góðri fundarþátttöku. Árangur félagsins  byggist á samtakamætti okkar og við leitum eftir að þið takið þátt í að móta hvert við stefnum!

Bestu kveðjur

Stjórn FÍH