Opnað fyrir umsóknir í tónleikaröðina “Velkomin heim” í Hörpu
Tónleikaröðin “Velkomin heim” hefur nú sitt níunda starfsár þar sem ungu tónlistarfólki, bæði úr klassíska og rythmíska geiranum sem er við að ljúka námi erlendis eða nýútskrifað er boðið að koma fram, til þess að kynna sig. Tónleikarnir eiga sér stað í Hörpuhorni og hefur reynst skemmtileg viðbót við tónleikaflóruna í húsinu. Velkomin heim hefur fest sig í sessi hjá tónleikahöldurum og skipuleggjendum í Hörpu en einnig meðal almennings og hjá gestum sem sækja tónleika í Hörpu en ekki síður hjá erlendum ferðamönnum sem taka tónleikunum sem kærkominni viðbót við heimsóknir í húsið. Ungir og upprennandi listamenn sjá sér hag í að vera hluti af tónleikaröðinni.
Viltu koma fram í tónleikaröðinni “Velkomin heim” í Hörpu sumarið 2026?
Tónleikaröðin “Velkomin heim” er samstarfsverkefni FÍT-klassískrar deildar FÍH og Hörpu en röðin er hugsuð sem kynningarvettvangur fyrir ungt tónlistarfólk sem hefur lokið framhaldsnámi.
Tónleikaröðin verður haldin í níunda skipti, í júlí 2026. Tónleikar fara fram í Hörpuhorni á sunnudögum í júlí og eru um klukkustund að lengd.
FÍT heldur utan um skipulag tónleikaraðarinnar og kallar eftir umsóknum fyrir tónleikaröð sumarsins.
Vinsamlegast sendið ferilsskrá og drög að efnisskrá á fiston@fih.is.
Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum 1.mars 2026.
