Opið fyrir umsóknir í Tíbrá veturinn 26-27
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í tónleikaröðina Tíbrá í Salnum fyrir tónleikaárið 2026 – 2027.
Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins og hefur verið haldin með hléum frá árinu 1999. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið.
Umsóknarfrestur er til miðnættis miðvikudaginn 25. febrúar 2026.
Sótt er um í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar, hér:
https://thjonustugattin.kopavogur.is/category/9df80cff592e5828a8277b14f0a8f84d
————————————————————————-
|
Bestu kveðjur. |
|
Sverrir Páll Sverrisson |
|
Verkefnastjóri viðburða og rekstrar | Salurinn |
|
Skrifstofa umbóta og þróunar | sverrir.pall.sverrisson@kopavogur.is |
|
Digranesvegur 1 | 200 Kópavogur | Sími 4410000 |
