Opið fyrir umsóknir um dvöl í Úthlíð og Súðavík í sumar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um orlofshús FÍH í sumar. Um er að ræða Kjarrhús í Úthlíð og Bjarnabúð í Súðavík. Tímabilið er júní, júlí og ágúst 2026.
Úthlutað er viku í senn og þarf að sækja um frá föstudegi til föstudags.
Umsóknarfrestur rennur út 16. apríl 2026
Hér er slóð á umsóknareyðublað: https://fih.tonviska.is/orlofshusumsokn.html
Upplýsingar um orlofshúsin eru hér á síðunni.
