FÍH – Þungar áhyggjur vegna AI-samninga plötuútgefenda – fréttatilkynning
Norræn samtök tónlistarflytjenda hafa gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu, er varðar gervigreind.
Í yfirlýsingunni er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúinni tónlist — án þess að leita samþykkis þeirra hljómlistarmanna sem hljóðfæraleikurinn og raddirnar eru upprunnar frá.
Yfirlýsinguna styðja einnig FIM (alþjóðasamband stéttarfélaga tónlistarflytjenda),IAO (alþjóðasamband tónlistarflytjenda) og BÍL (Bandalag íslenskra listamanna).
Meðfylgjandi er fréttatilkynning og sameiginleg yfirlýsing norrænu félaganna.
Fréttatilkynning FÍH v. AI 29.6. 2026
Joint statement on AI Partnerships 2026-06-25
Gunnar Hrafnsson – formaður FÍH
