Samkeppniseftirlitið tekur undir sjónarmið FÍH um nauðsyn aukinnar samkeppni á miðasölumarkaði

Samkeppniseftirlitið hefur sent viðburðarhúsum á Íslandi tilmæli og leiðbeiningar um miðasölu á viðburði í kjölfar erindis Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) frá mars 2025. Tilmælin fela í sér mikilvægt skref í átt að aukinni samkeppni á miðasölumarkaði og styðja við þau sjónarmið sem FÍH hefur haldið á lofti.

Í erindi FÍH var bent á sterka stöðu Tix á markaði fyrir rafræna miðasölu og þær hindranir sem viðburðarhaldarar kunna að standa frammi fyrir þegar þeir vilja velja sér annan miðasöluaðila. FÍH hefur meðal annars lagt áherslu á að viðburðarhaldarar eigi sjálfir að geta valið miðasölufyrirtæki og að samningar viðburðarhúsa megi ekki standa í vegi fyrir eðlilegri samkeppni.

Samkeppniseftirlitið telur Tix líklega vera í markaðsráðandi stöðu á markaðnum, þótt ekki hafi verið lagt formlegt mat á markaðshlutdeild fyrirtækisins. Eftirlitið hefur ákveðið að hefja ekki formlega rannsókn að svo stöddu en beinir þess í stað skýrum tilmælum til viðburðarhúsa um aðgerðir sem eiga að bæta samkeppnisaðstæður.

Meðal þess sem Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á er að samningar við miðasölufyrirtæki séu almennt ekki lengri en fimm ár, að viðburðarhaldarar fái sjálfir að velja miðasöluaðila þegar því verður við komið og að samningar viðburðarhúsa takmarki ekki möguleika þeirra til að semja um lykilþætti, svo sem þóknun af miðaverði.

Einnig er lögð áhersla á að viðburðarhús tryggi jafnræði miðasölufyrirtækja, kanni reglulega verð og þjónustu annarra aðila og nýti útboð og verðfyrirspurnir til að skapa nýjum fyrirtækjum raunhæfan aðgang að markaðnum.

FÍH fagnar því að Samkeppniseftirlitið taki þessi sjónarmið til greina. Virk samkeppni á miðasölumarkaði er mikilvæg fyrir tónlistarfólk, viðburðarhaldara og almenning. Hún getur stuðlað að lægri kostnaði, betri þjónustu og auknu valfrelsi þeirra sem standa að menningar- og tónlistarviðburðum.

FÍH mun áfram fylgjast með framvindu málsins og því hvernig viðburðarhús bregðast við tilmælum Samkeppniseftirlitsins