Samkeppniseftirlitið beinir tilmælum til Tix og viðburðahúsa í kjölfar ábendingar FÍH
Samkeppniseftirlitið hefur nýlega lokið umfjöllun um ábendingu FÍH vegna miðasölunnar Tix. Slík vegferð tekur tíma. Við sendum ábendinguna inn [2024/2025] en erum núna að fá niðurstöður í hús.
Forsagan er að mörgum tónleikahöldurum hefur þótt nóg um hlutdeild miðasölu í tekjum þeirra af tónleikahaldi. Þegar allt er talið geta aukagjöld numið 8–10% af heildarveltunni. Það er stór biti að kyngja þegar grunur leikur á að virkari samkeppni gæti skilað hagstæðari kjörum. Skortur á samkeppni er nefnilega að okkar mati höfuðvandinn.
Samkvæmt rannsókn Samkeppniseftirlitsins virðist Tix vera með 85–100% hlutdeild í miðasölu. Við fullyrðum að keppinautar Tix eigi erfitt með að komast að borðinu, sérstaklega þegar viðburðastaðir semja við Tix um að öll miðasala sé í höndum fyrirtækisins.
Í stuttu máli er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins þessi:
„Samkeppniseftirlitið hefur, með bréfi dags. 5. nóvember 2026, lokið fyrstu meðferð á kvörtun FÍH frá 14. mars 2025 vegna háttsemi Tix miðasölu ehf. Eftirlitið ákvað að hefja ekki formlega rannsókn að svo stöddu og vísaði þar til heimildar sinnar til að forgangsraða málum. Það telur þó veigamikil rök hníga að því að Tix sé í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir miðasölu í gegnum rafræn miðasölukerfi á viðburði þriðja aðila hér á landi. Að mati eftirlitsins bera samningar Tix við stærstu viðburðahús landsins einkenni einkakaupasamninga, þótt sum húsin hafni því.
Samkeppniseftirlitið hefur því beint þeim tilmælum til Tix að leggja upplýst mat á eigin stöðu á markaði og að yfirfara samninga sína svo tryggt sé að í þeim felist ekki einkakaup eða önnur samkeppnishamlandi háttsemi sem fari gegn 11. gr. samkeppnislaga. Jafnframt áréttar eftirlitið að Tix megi ekki verðleggja þjónustu undir kostnaðarverði og að samningar við viðburðahús skuli vera tímabundnir og gilda að hámarki í fimm ár. Samhliða hefur eftirlitið beint tilmælum til helstu viðburðahúsa um að efla samkeppni og auðvelda nýjum aðilum aðgang að markaðnum. Eftirlitið tekur fram að það kunni síðar að hefja formlega rannsókn berist frekari kvartanir eða ábendingar.“
Samkeppniseftirlitið beinir síðan tilmælum til viðburðastaðanna um að stuðla að jafnræði miðasöluaðila.
Nú er boltinn hjá okkur. Við þurfum að fylgjast með hvort Tix og húsin fari eftir tilmælunum, því eins og fram kemur hér að ofan getur Samkeppniseftirlitið gripið inn í ef frekari kvartanir berast. Við munum fylgjast með eftir megni en biðjum ykkur að hafa samband ef þið verðið vör við að tilmælunum sé ekki fylgt.
Tilmæli Samkeppniseftirlitsins til Tix og viðburðastaðanna fylgja hér í viðhengi: