Tilmæli BÍL um notkun gervigreindar
Á Degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember, voru tilmæli Bandalags íslenskra listamanna varðandi ábyrga notkun gervigreindar kynnt í Norræna húsinu. Tilmælin eru unnin að sænskri fyrirmynd og í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Forseti Íslands og Menningarráðherra sóttu fundinn og góð erindi voru flutt um stöðu menningar gagnvart gervigreindinni.