Styrkir úr Tónlistarsjóði 2019
Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu:
1. janúar – 30. júní 2019.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.
Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á www.rannis.is.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.
Umsóknarfrestur rennur út 15. nóvember 2018 kl. 16.00 – ath! ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir þann tíma.
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember. Næsti umsóknarfrestur er 15. maí 2019
Rannís,
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Sími: 515 5800
Netfang sjóðs: tonlistarsjodur@rannis.is