Minnum á aðalfund FÍH 7. maí kl. 18:00 í Sal FÍH

Kæri félagsmaður

Aðalfundur FÍH 2019 verður haldinn þriðjudaginn 7. maí  kl. 18:00 í sal FÍH í Rauðagerði 27, við hvetjum þig til að mæta og taka þátt í stefnumótun varðandi félagið þitt.

Fyrir félagsmenn á landsbyggðinni og þá sem eiga ekki heimagengt verður bein útsending frá fundinum á netinu, slóðin á útsendinguna verður send síðar.  

Fundarefni:

  • Venjuleg aðalfundarstörf (skýrsla stjórnar og skýrsla gjaldkera)
  • Lagabreytingar
  • Kosning til stjórnar (kosið er um varaformann, ritara og gjaldkera)   
  • Önnur mál

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

Við bendum á eftirfarandi klausu úr lögum félagsins:

“Framboð til stjórnarsetu skulu berast skrifstofu félagsins a.m.k.
viku fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn er heimilt að tilnefna félagsmenn í stjórnir og ráð hafi
ekki borist framboð fyrir tilskilinn tíma.”

Með góðri kveðju, stjórn FÍH