Menningarsjóður FÍH – 1. úthlutun 2023


Við vekjum athygli ykkar á að fyrsti úthlutunarfundur ársins úr Menningarsjóði FÍH er haldinn þriðjudaginn 14. mars nk. og að umsóknir þurfa að hafa borist fyrir miðnætti sunnudaginn 12. mars til að umsóknin komi til greina við þá úthlutun.

Rafrænt umsóknareyðublað er að finna undir flipanum „Umsóknir“ —> „Menningarsjóður“.

Þar má einnig lesa úthlutunarreglur sjóðsins og við minnum á að umsóknir koma aðeins til greina ef upplýsingagjöfin er fullnægjandi.

 

Aðeins verður tilkynnt um niðurstöður styrkveitinga með rafrænum hætti en ekki með bréfasendingum eins og áður. Ef svör berast ekki til ykkar af afloknum fundi biðjum við ykkur um að láta okkur vita, öll eiga að fá sitt svar! 


Bestu kveðjur,

Úthlutunarnefnd Menningarsjóðs FÍH