FÍH – Hittumst í Bíó Paradís – og hátíðardagskrá 1. maí
BHM blæs til samveru á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Það verður opið hús í Bíó Paradís frá kl. 11:00 -13:00 – boðið verður upp á hamborgara og franskar frá Hamborgarabúllu Tómasar frá kl. 11:30-12:30, auk þess verður hægt að fá gos, kaffi, te og popp í sjoppunni.
Þaðan göngum við saman upp á Skólavörðuholt rétt fyrir kl. 13:00 og tökum þátt í kröfugöngunni sem hefst kl. 13:30.
Fjölmennum, sýnum samstöðu og njótum dagsins saman – fjölskyldan er að sjálfsögðu velkomin!
Eitt praktískt atriði: Fánar sem eru staðsettir í Borgartúni 6 verða sóttir og fluttir á Skólavörðuholt í samráði við Pálu kynningarstjóra. Búið er að stilla BHM-fánunum upp við hurðina í geymslunni. Ef einhver aðildarfélög eiga fána á B6 sem þau vilja láta flytja með fyrir kröfugönguna, endilega stillið þeim upp hjá BHM-fánunum í geymslunni og látið Pálu vita.
Sjá hátíðardagskrá:
