Seigla 2026 – opið fyrir umsóknir
Við tökum nú við umsóknum frá tónlistarfólki sem hefur áhuga á að vera með á Seiglu 2026. Umsóknartímabilið stendur yfir frá 4. febrúar til og með 28. febrúar 2026.
Seigla 7.-9. ágúst 2026
Seigla fer næst fram í Hörpu helgina 7.-9. ágúst 2026.
Tónleikar fara fram í Norðurljósum og opnum rýmum Hörpu.
Seigla er kammertónlistarhátíð sem á heima í Hörpu síðan hún var stofnuð 2021. Seigla leggur áherslu á viðburði þar sem hið hefðbundna tónleikaform er oft endurskoðað og leggur upp úr að bjóða upplifanir sem hvetja til samfélagsmyndunar.
Frekari upplýsingar um hátíðina og umsóknarferlið má nálgast á vefsíðu hátíðarinnar:
|
|
Við hlökkum til að sjá ykkur á Seiglu í sumar!
Teymi Seiglu:
Erna Vala Arnardóttir
Pétur Ernir Svavarsson
Lee Marable
Erla Rut Árnadóttir
Þorgrímur Þorsteinsson
