FÍH – aðalfundarboð 2026

Aðalfundur FÍH 2026 verður haldinn þriðjudaginn 28. apríl  kl. 18:00 í sal FÍH, Rauðagerði 27. Einnig verður hægt að sækja aðalfundinn á ZOOM fjarfundasniði og hlekkur verður sendur út þegar nær dregur fundi.

Fundarefni:

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Lagabreytingar
  • Kosning til stjórnar (kosið er um formann og tvo meðstjórnendur. (Gunnar Hrafnsson formaður, Margrét Eir Hönnudóttir og Ólafur Jónsson meðstjórnendur gefa öll kost á sér áfram)
  • Önnur mál

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

Við bendum á eftirfarandi úr lögum félagsins:

Framboð til stjórnarsetu skulu berast skrifstofu félagsins a.m.k.
viku fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn er heimilt að tilnefna félagsmenn í stjórnir og ráð hafi
ekki borist framboð fyrir tilskilinn tíma.

Eins og fyrr vonumst eftir góðri fundarþátttöku. Við þurfum á inngjöf ykkar að halda til að fá fram fjölbreytt sjónarmið varðandi stefnuna og starfið!

Bestu kveðjur

Stjórn FÍH