Opið fyrir umsóknir í Tíbrá veturinn 26-27

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í tónleikaröðina Tíbrá í Salnum fyrir tónleikaárið 2026 – 2027.

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins og hefur verið haldin með hléum frá árinu 1999. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið.

 

Umsóknarfrestur er til miðnættis miðvikudaginn 25. febrúar 2026.

Sótt er um í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar, hér:

https://thjonustugattin.kopavogur.is/category/9df80cff592e5828a8277b14f0a8f84d

————————————————————————-

 

 

Bestu kveðjur.

Sverrir Páll Sverrisson

Verkefnastjóri viðburða og rekstrar     |     Salurinn

Skrifstofa umbóta og þróunar     |     sverrir.pall.sverrisson@kopavogur.is 

 

 

Digranesvegur 1        |       200 Kópavogur       |        Sími 4410000