12
  1. 28.8.2024

    Menningarsjóður FÍH – 3. úthlutun 2024 mánudaginn 16. september

    Við vekjum athygli ykkar á að 3. úthlutunarfundur ársins úr Menningarsjóði FÍH verður haldinn mánudaginn 16. september nk. og að umsóknir þurfa að hafa borist fyrir miðnætti fimmtudaginn 12. september til að umsóknin komi til greina við þá úthlutun. Rafrænt umsóknareyðublað er að finna undir flipanum „Umsóknir“ —> „Menningarsjóður“. Þar má einnig lesa úthlutunarreglur sjóðsins […]

    Lesa alla frétt
  2. 23.8.2024

    FÍH – drög aðalnámskrár komin í samráðsgátt

    Til tónlistarkennara og skólastjórnenda í FÍH Nú eru drög að endurskoðun aðalnámskrár komin í samráðsgátt stjórnvalda, hér er slóðin: https://samradapi.island.is/api/Documents/5330b2e3-995f-ef11-9bc5-005056bcce7e  

    Lesa alla frétt
  3. 23.8.2024

    FÍH – samkomulag um framkvæmd styttingar vinnutíma 2024-25

    Til kennara og skólastjórnenda í FÍH FÍH hefur undirritað samkomulag við Samband íslenskra sveitafélaga um framkvæmd vinnutímastyttingar á skólárinu 2024-25. Samkomulag SÍS og FÍH um styttingu vinnutíma skólaárið 2024-25 Við fögnum því að samkomulagið hafi náðst. Enn er kjarasamningum ólokið en samkomulagið gerir skólastjórnendum kleift að skipuleggja skólaárið með ásættanlegum hætti í samráði við sitt […]

    Lesa alla frétt
  4. 14.8.2024

    Útgáfuhóf – Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum

    Þann 22. ágúst n.k. kl. 16:00 verður haldið útgáfuhóf  vegna útgáfu Söngbókar séra Ólafs Jónssonar á Söndum. Séra Ólafur Jónsson (um 1560–1627), prestur á Söndum í Dýrafirði, var á meðal vinsælustu skálda á sinni tíð. Kvæði og sálmar annarra skálda eru yfirleitt varðveitt hér og þar í handritum en séra Ólafur safnaði kveðskap sínum saman […]

    Lesa alla frétt
  5. 6.8.2024

    Listamannalaun 2025, umsóknarkerfi opið

    Listamannalaun 2025    Tilgangur listamannalauna er að efla listsköpun í landinu.  Opið er fyrir umsóknir til kl. 15:00, 1. október 2024.    Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 1720 mánaðarlaun, 143,3 árslaun:  50 mánuðir úr launasjóði hönnuða og arkitekta, 4,2 árslaun  435 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna, 36,3 árslaun  555 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda, 46 […]

    Lesa alla frétt
  6. 6.8.2024

    Haustnámskeið í skapandi tónlistarstjórnun

      Haustnámskeið í skapandi tónlistarstjórnun verður haldið helgina 30. ágúst og 1. september 2024 kl. 10 – 17 báða dagana í sal Nýja Tónlistarskólans, Grensásvegi 3 – 5, Reykjavík. Hér er slóð á auglýsinguna: Skapandi tónlistarstjórnun haust 2024 (003) Tengiliður: Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths sigrunsae@yahoo.co.uk

    Lesa alla frétt
  7. 26.6.2024

    Sumarlokun FÍH

    Skrifstofa FÍH ásamt æfingahúsnæði verða lokuð frá og með 15. júlí, í þrjár vikur, fram yfir verslunarmannahelgi. Opnum aftur þriðjudaginn 6. ágúst.

    Lesa alla frétt
  8. 26.6.2024

    Laus vika í Bjarnabúð, Súðavík

    Vegna óvæntra forfalla er vikan 28.júní – 5. júlí laus í Súðavík. Hér er umsóknareyðublað: https://fih.tonviska.is/orlofshusumsokn.html      

    Lesa alla frétt
  9. 29.5.2024

    Nýr samningur RÚV og FÍH

    Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, og RÚV undirrituðu nýlega samning um greiðslur til tónlistarfólks fyrir framkomu í miðlum RÚV og á tónleikum sem eru teknir upp. Hér er slóð á frétt RÚV: Nýr samningur RÚV og FÍH – RÚV.is (ruv.is) Á myndinni má sjá frá vinstri Róbert Þórhallsson, Einar Loga Vignisson, Stefán Eiríksson útvarpsstjóra, Margréti Magnúsdóttur […]

    Lesa alla frétt
  10. 17.5.2024

    Tónlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum

    Tónlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar úr nýjum Tónlistarsjóði árið 2024. Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk. Kl.15:00   Hér er frétt á  síðu Tónlistarmiðstöðvar : https://www.tonlistarmidstod.is/news/auglyst-eftir-umsoknum-vegna-uthlutunar-ur-nyjum-tonlistarsjodi   Á eftirfarandi slóð er hægt að nálgast frekari upplýsingar og  umsókn: https://www.tonlistarmidstod.is/tonlistarsjodur

    Lesa alla frétt