Menningarsjóður FÍH – 2. úthlutun 2025
Við vekjum athygli ykkar á að annar úthlutunarfundur ársins úr Menningarsjóði FÍH verður haldinn föstudaginn 30. maí og að umsóknir þurfa að hafa borist fyrir miðnætti þriðjudaginn 27. maí til að umsóknin komi til greina við þá úthlutun.
Rafrænt umsóknareyðublað er að finna undir flipanum „Umsóknir“ —> „Menningarsjóður“.
Þar má einnig lesa úthlutunarreglur sjóðsins og við minnum á að umsóknir koma aðeins til greina ef upplýsingagjöfin er fullnægjandi.
Tilkynnt verður um niðurstöður styrkveitinga með rafrænum hætti.
Bestu kveðjur,
Úthlutunarnefnd Menningarsjóðs FÍH