Tilkynningar
-
2.4.2019
Aðalfundarboð FÍH 2019
Aðalfundarboð FÍH 2019 Kæri félagsmaður, Aðalfundur FÍH 2019 verður haldinn þriðjudaginn 7. maí kl. 18:00 í sal FÍH í Rauðagerði 27, við hvetjum þig til að mæta og taka þátt í stefnumótun varðandi félagið þitt. Fyrir félagsmenn á landsbyggðinni og þá sem eiga ekki heimagengt verður bein útsending frá fundinum á netinu, slóðin á útsendinguna […]
Lesa alla frétt -
18.3.2019
Sinfó og RÚV vilja heyra sögu þína!
Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV undirbúa tónlistarveislu í sumarlok. Klassíkin okkar snýr aftur og leitar nú að persónulegum sögum bak við tónlistina. Og nú leitum við til ykkar til að breiða út erindið að fá fólk til að hugsa: á ég svona sögu eða veit ég um einhvern sem á góða sögu? Við ætlum því að […]
Lesa alla frétt -
13.3.2019
Eingreiðsla
Eingreiðsla til Tónlistarkennara í röðum FÍH Við minnum ykkur á að 1. febrúar 2019 kom til eingreiðsla skv. kjarasamningi FÍH (gr. 1.6.2) vegna tónlistarkennara. Upphæðin fyrir fullt starf er 58.200 og síðan hlutfall af þeirri upphæð miðað við stöðuhlutfall viðkomandi. Fylgist endilega með að vinnuveitendur ykkar hafi gætt þess að greiða ykkur rétta upphæð! […]
Lesa alla frétt -
12.3.2019
Hugsum málið til enda !
Kæru félagsmenn, Við viljum af gefnu tilefni brýna fyrir félagsmönnum að taka ekki að sér verkefni sem eru langt undir töxtum FÍH. Taxtarnir lýsa í raun þeirri lágmarksupphæð sem tónlistarmenn telja sanngjarna fyrir sína vinnu og ef við spilum undir þeim erum við að grafa undan eigin tilverugrundvelli. Allir taxtar eru aðgengilegir á heimasíðu […]
Lesa alla frétt -
13.2.2019
Málfundur um fjölmiðla, menningu og listir
Málfundur um fjölmiðla, menningu og listir Laugardaginn 16. febrúar stendur Bandalag íslenskra listamanna fyrir málþingi um fjölmiðla, menningu og listir á efri hæðinni í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík. Það er ekki oft sem listir og menning krauma upp á yfirborðið í fréttaflutningi og samfélagsumræðu með þeim hætti sem verið hefur í upphafi árs […]
Lesa alla frétt -
1.2.2019
Jazzhátíð Reykjavíkur auglýsir
Kæra tónlistarfólk, Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin á dagana 4.-8. september næstkomandi og nú leitum við að íslenskum atriðum og/eða samstarfsverkefnum. Hér er innsendingarform sem við biðjum ykkur að nota til að koma hugmyndum á framfæri: https://goo.gl/forms/Efgkvxjn1bDvO71H3 Opið er fyrir innsendingar til og með 1.mars og umsóknum verður svarað eins fljótt og auðið er. Nánari upplýsingar […]
Lesa alla frétt -
19.12.2018
Lokað í FÍH á milli jóla og nýárs
Kæru félagsmenn Skrifstofa FÍH verður lokuð á milli jóla og nýárs. Opnum aftur fimmtudaginn 3. janúar. Minnum á jólatrésskemmtunina föstudaginn 21. desember kl. 16:00. Endilega fjölmennið með börnin ! Með jólakveðju Starfsfólk FÍH
Lesa alla frétt -
14.12.2018
Vetrarþing tónlistarkennara FÍH
Vetrarþing FÍH Þann 25. janúar næstkomandi mun kennaradeild FÍH standa fyrir vetrarþingi í sal FÍH í Rauðagerði 27. FÍH vill með þinginu stuðla að faglegri umræðu um tónlistarkennslu og bjóða kennurum að taka þátt í dagskrá sem tekur á mikilvægum málefnum sem snúa að tónlistarmenntun. Vetrarþingið getur jafnframt nýst sem hluti af símenntunaráætlun tónlistarskólanna. Við […]
Lesa alla frétt -
12.12.2018
Jólatrésskemmtun FÍH
Nú líður að hinni árlegu jólatrésskemmtun FÍH sem haldin er í sal félagsins í Rauðagerði eins og fyrri ár. Tímasetningin er að þessu sinni 21. desember kl. 16-18. Hljómsveit Eddu Borgar heldur uppi jólafjörinu og jólasveinninn stingur inn nefinu, spennandi verður að vita hvað hann dregur úr pokanum? Við bjóðum upp á heitt súkkulaði og […]
Lesa alla frétt -
7.12.2018
Nýjar bækur um tónlist og tónlistarmenn
Nú eru nýútkomnar tvær stórmerkar bækur um tónlist og tónlistarmenn sem eru tilvalin jólagjöf. Við vekjum athygli á sérlega hagstæðu tilboði til félagsmanna
Lesa alla frétt