Útfarir – Organistar
Uppreiknað 01.02.2015 skv. des. vísitölu 2014; 494,6 stig
Organistadeild FÍH
-
1. gr. Hefðbundin útför
Organleikur við útför. Hér er átt við hefðbundna útför þar sem um engar séróskir um forspil eða eftirspil er að ræða og ekkert aukaómak – kr. 21.663,-
-
2. gr. Organleikur ásamt einsöng/einleik
Organleikur við útför ásamt undirleik með einsöng eða einleik. Gert er ráð fyrir æfingu með einleikara/einsöngvara, sérstökum orgeleinleik í athöfn og/eða sérstöku forspili/eftirspili, sem æfa þarf sérstaklega,enda sé það utan hefðbundins ramma slíkra verka – kr. 32.179,-
-
3. gr. Kistulagning
Organleikur við kistulagningarbæn. Athöfn einföld í sniðum, oftast leikið á undan og eftir hinu talaða orði, sjaldan kórsöngur,oftast einn eða tveir söngvarar – kr.16.084,-
-
13. gr. Ferðalög
Gjald fyrir ferðir kr. 2.320.-. Á við um þéttbýlissvæði, utan þeirra gildir kílómetragjald nú kr. 116.- ákveðið af ferðakostnaðarnefnd ríkisins á hverjum tíma, ef ekki er séð fyrir fari.
-
Aukagrein
Þegar leika skal í athöfn lag sem organleikari þarf að útsetja, skal hann reikna sér tímakaup við það og annan þann kostnað sem af því leiðir.
Reikna skal 42% álag á laugardögum á öllum liðum nema brúðkaupum, þar sem laugardagsútfarir eru ekki hefð.